Prenthaus

Bið Krónunnar eftir lóð á Akureyri loksins á endaHvannavallareitur við Tryggvabraut.

Bið Krónunnar eftir lóð á Akureyri loksins á enda

Matvörukeðjan Krónan hefur beðið í mörg ár eftir lóð fyrir verslun á Akureyri. Það lítur allt út fyrir að biðin sé loksins á enda en bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt samning um deiliskipulag á Hvannavallareit við Tryggvabraut fyrir verslun Krónunnar. Rúv greinir frá þessu í dag.
Stefnt er að því að opna búðina árið 2022 en framkvæmdir ættu að hefjast á næstu mánuðum.

Draumur hjá fyrirtækinu lengi að opna á Akureyri

Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdarstjóri Krónunnar, segir í samtali við Rúv að opnun á Akureyri hafa legið lengi í loftinu. „Við fögnum því að fá þessa hluti á hreint. Þetta hefur vissulega legið í loftinu lengi. Það var nú bara í síðustu viku sem deiliskipulagið var samþykkt og síðan samþykkt á fundi bæjarráðs í kjölfarið. Svo er það bara á morgun sem að bæjarstjórn að öllum líkindum staðfestir þetta,“ segir Ásta Sigríður.

Hún segir það hafa verið draum hjá fyrirtækinu lengi að opna verslun á Akureyri. „Eins og oft vill verða með deiliskipulagsmál og annað þá tekur það lengri tíma en maður vonast eftir. Þetta er reitur sem er töluvert flókinn og margar lóðir sem liggja þarna að,“ segir Ásta í samtali við fréttastofu Rúv.

UMMÆLI