Einar og Matea best hjá KA og KA/Þór

Einar og Matea best hjá KA og KA/Þór

Lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þór fór fram á miðvikudaginn 8. maí. Veitt voru verðlaun og viðurkenningar fyrir tímabilið sem er liðið. Þetta kemur fram í tilkyningu á vef KA.

Fimm leikmenn voru heiðraðir fyrir að spila 100 leiki fyrir félagið en það voru þau: Patrekur Stefánsson, Arnór Ísak Haddsson og Daði Jónsson karla megin en kvennamegin voru það Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir og Matea Lonac

Síðan voru veitt verðlaun fyrir: Besta leikmann, efnilegasta leikmann og besta liðsfélaga og fóru verðlaunin svona:

Bestur hjá KA: Einar Rafn Eiðsson
Efnilegastur hjá KA: Skarphéðinn Ívar Einarsson
Besti liðsfélagi hjá KA: Haraldur Bolli Heimisson

Best hjá KA/Þór: Matea Lonac
Efnilegust hjá KA/Þór: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir
Besti liðsfélagi hjá KA/Þór: Anna Þyrí Halldórsdóttir

Þá voru þeim Rut Arnfjörð og Ólafi Gústafssyni þakkað sérstaklega fyrir sitt framlag til félaganna á undanförnum árum en þau kveðja að þessu tímabili loknu. Sömu sögu má segja um Telmu Ósk Þórhallsdóttur og Skarphéðinn Ívar Einarsson. Loks fengu Arna Valgerður Erlingsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson, fráfarandi þjálfarar KA/Þór blómvönd fyrir sín störf en þau láta af störfum eins og fram hefur komið.


UMMÆLI