Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Halla Hrund Logadóttir á ferðalagi um Norðurland

Halla Hrund Logadóttir á ferðalagi um Norðurland

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður á ferð og flugi um Norðurland í vikunni og býður heimamönnum til opinna funda og samtals um embætti forseta Íslands.

Sjá meðfylgjandi dagskrá, en athugið að Halla Hrund stefnir að því að fara meira um Norðurland á næstu vikum og heimsækja fleiri staði:

Mánudagurinn 29. apríl kl. 12: Opinn fundur á North West, Víðigerði

Mánudagurinn 29. apríl kl. 17: Opinn fundur á Apótekarastofunni, Hótel Blönduósi

Mánudagurinn 29. apríl kl. 20: Opinn fundur á Kaffi Króki, Sauðárkróki

Þriðjudagurinn 30. apríl kl. 20: Opinn fundur á Mói Bistró, Menningarhúsinu Hofi, Akureyri

Miðvikudagurinn 1. maí kl. 12: Opinn fundur á Sel – Hótel Mývatn í Mývatnssveit

Miðvikudagurinn 1. maí kl. 20: Opinn fundur í Félagsheimili Framsýnar, Húsavík

Fimmtudagurinn 2. maí kl. 20: Opinn fundur á Kontornum, Grenivík

Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.

Á opnum fundum á Norðurlandi mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og hvaða sýn hún hefur á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi.

Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að mæta og hitta hana.

UMMÆLI