Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Íþróttamaður Akureyrar valinn á miðvikudagViktor Samúelsson og Aldís Kara Bergsdóttir voru efst í kjöri íþróttamanns Akureyrar í fyrra. Þau eru bæði tilnefnd aftur.

Íþróttamaður Akureyrar valinn á miðvikudag

Tilkynnt verður á miðvikudaginn næstkomandi um val á íþróttakarli og íþróttakonu Akureyrar fyrir árið 2020.

Síðustu ár hefur bæjarbúum verið boðið til athafnar við þetta tilefni. Sökum aðstæðna verður viðburðurinn í menningarhúsinu Hofi með öðru og minna sniði en venjulega og er því miður ekki hægt að hafa hann opinn almenningi.

Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Akureyrarbær standa að valinu og verður þetta í 42. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður.

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakonu Akureyrar 2020 eru:
Aldís Kara Bergsdóttir, Skautafélag Akureyrar, fyrir listhlaup
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Golfklúbbi Akureyrar, fyrir golf
Anna María Alfreðsdóttir, Íþróttafélagið Akur, fyrir bogfimi
Arna Sif Ásgrímsdóttir, Íþróttafélagið Þór, fyrir knattspyrnu með Þór/KA
Ásdís Guðmundsdóttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir handknattleik með KA/Þór
Gígja Björnsdóttir, Skíðafélag Akureyrar, fyrir skíðagöngu
Gígja Guðnadóttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir blak
Hafdís Sigurðardóttir, Hjólreiðafélag Akureyrar, fyrir götuhjólreiðar
Hafdís Sigurðardóttir, Ungmennafélag Akureyrar, fyrir frjálsar
Karen María Sigurgeirsdóttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir knattspyrnu með Þór/KA

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakarls Akureyrar 2020 eru:
Baldur Vilhelmsson, Skíðafélag Akureyrar, fyrir snjóbretti
Brynjar Ingi Bjarnason, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir knattspyrnu
Einar Sigurðsson, KKA Akstursíþróttafélag, fyrir motocross
Ingvar Þór Jónsson, Skautafélag Akureyrar, fyrir íshokkí
Júlíus Orri Ágústsson, Íþróttafélagið Þór, fyrir körfuknattleik
Lárus Ingi Antonsson, Golfklúbbur Akureyrar, fyrir golf
Miguel Mateo Castrillo, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir blak
Vignir Sigurðsson, Hestamannafélagið Léttir, fyrir hestaíþróttir
Viktor Samúelsson, Kraftlyftingafélag Akureyrar, fyrir kraftlyftingar
Þorbergur Ingi Jónsson, Ungmennafélag Akureyrar, fyrir utanvegahlaup

UMMÆLI

Sambíó