Norðurorka veitti 46 styrki til samfélagsverkefnaMynd sem Auðunn Níelsson tók af styrkþegum eða fulltrúum þeirra að lokinni úthlutun.

Norðurorka veitti 46 styrki til samfélagsverkefna

Miðvikudaginn 8. janúar úthlutaði Norðurorka styrkjum til samfélagsverkefna en athöfnin fór fram í Listasafninu á Akureyri. Alls voru 46 verkefni sem fengu styrki en heildarfjárhæð styrkjanna nam sjö milljónum króna.

Í byrjun nóvember 2019 auglýsti Norðurorka hf. eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2020 og rann umsóknarfrestur út 19. nóvember. Fram kom að veittir væru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjum Norðurorku hf. er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Alls bárust 105 umsóknir. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á starfssvæði Norðurorku sem nær frá Fjallabyggð til Þingeyjarsveitar en einnig komu nokkrar umsóknir annarsstaðar frá. Verkefnin voru fjölbreytt og greinilega mikil gróska í samfélaginu á fjölmörgum sviðum.

Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hlutu samfélagsstyrk Norðurorku árið 2020:

StyrkþegiVerkefni
Aldís Kara BergsdóttirAfreksstyrkur – Listhlaup á skautum.
Alþýðumenning við EyjafjörðEyfirski safnadagurinn 2020.
Amtsbókasafnið á AkureyriKaup á snjalltækjum til notkunar í verkefninu Snillismiðjan.
Anna Lindberg – Kór fyrir allaKór fyrir alla – Markmið starfsins er gleði og hamingja.
Aron Máni SverrissonAfreksstyrkur – Skíði.
ÁLFkonurLjósmyndasýning í Lystigarðinum á Akureyri 2020.
Bifhjólasamtök NorðuramtsHjóladagar á Akureyri í júlí 2020.
Björgunarsveitin Ægir á GrenivíkBygging nýs aðstöðuhúsnæðis.
Dansfélagið VefarinnSýning þar sem kynnt verða þjóðlög, þjóðdansar, þjóðbúningar og aðrar þjóðlegar hefðir.
Heilaheill – Félag slagþolenda, aðstandenda og fagaðilaFyrirlestrarferðir og kynningar á HEILA-APPINU, ásamt almennri fræðslu um málefninu.
Helgi JónssonHeimildamyndagerð um Menntaskólann á Akureyri.
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á AkureyriKaup á augnbotnamyndavél.
Hollvinir Húna IITil reksturs Húna II sem er í dag m.a. notaður til fræðslu grunnskólanema á Eyjafjarðarsvæðinu.
HæliðUppsetning leikritsins Meðan lífs ég er sem er heimildaleiksýning unnin út frá rýminu á Hælinu.
Innflytjendaráð á Akureyri og nágrenniAlþjóðlegt eldhús 2020.  
Íþróttafélagið AkurSpecial Olympics sport festival í Danmörku í maí 2020. 
Jónas SigurðssonUpplýsingaöflun um gamlar rafstöðvar í Þingeyjarsveit.
Kaffi Klara ehf.Hljóðútgáfa sagna um gömlu símstöðina á Ólafsfirði sem gestir kaffihússins geta notið með aðstoð gamalla símtækja.
Karl GuðmundssonHeimildamyndagerð um líf Karls sem er hreyfihamlaður og listsamvinnu hans og Rósu Kristínar Júlíusdóttur.
KFA FrjálsarKaup á búnaði.
KFUM og KFUK á AkureyriKaup á lyftu til að auðvelda aðgengi fatlaðra að félagsheimilinu Sunnuhlíð.
Kór eldri borgara á Akureyri – Í fínu formiKóramót vorið 2020. 
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennisMálþing um um krabbamein í konum með áherslu á BRCA 1 og BRCA 2 genastökkbreytingar.
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennisMálþing um krabbamein í körlum – Hrúturinn.
Kristín Irene ValdemarsdóttirFjallaskíða- og telemark keppni í Hlíðarfjalli.
Leikfélag Menntaskólans á AkureyriUppsetning á söngleiknum Into the Woods.
Leikfélag Verkmennaskólans á AkureyriUppsetning á fjölskyldusýningunni Tröll.
Lúðrasveit AkureyrarBúningakaup.
Margrét ÁrnadóttirTónleikarnir Hugarró þar sem allur ágóði rennur til Pietasamtakanna.
Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi – SUNNHeimildasöfnun fyrir söguritun félagsins í tengslum við 50 ára afmæli þess.
Skautafélag Akureyrar HokkídeildEndurnýjun og viðbót við keppnisbúnað barna- og unglingastarfs.
Skátafélagið KlakkurUndirbúningur skáta á aldrinum 14-18 ára til að takast á við 5 daga ÍSHÆK.
Skógræktarfélag FnjóskdælaGerð upplýsingaskilta í Hálsskógi.
Sólveig ZophoníasdóttirMargmiðlunarsmiðja fyrir ungt fólk – kaup á Padcaster upptökubúnaði.
Starfsendurhæfing NorðurlandsVerkefnið Gæfusporin
Starfsmannafélag SkógarlundarKaup á búnaði í skynörvunarherbergi í Skógarlundi.
Stefanía Sigurdís JóhönnudóttirAf hverju er ég femínisti – fræðslu­fyrirlestur um jafnrétti fyrir grunn- og framhaldsskólanema.  
Steinunn Arnbjörg StefánsdóttirTónleikaferð ásamt Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur, verk fyrir selló og orgel.
Sundfélagið ÓðinnAldursflokka meistaramót Íslands í sundi (AMÍ) sumarið 2020 fyrir 10-16 ára.   
Svavar Ingi SigmundssonAfreksstyrkur – Handbolti.  
Sönghópurinn JódísTónleikarnir Á fáksspori í Léttishöllinni í apríl 2020.
Tónlistarfélag AkureyrarTónleikaröð vorið 2020.
UMF SmárinnGönguskíðanámskeið fyrir alla aldurshópa. 
Leikhópurinn UmskiptingarTvíleikurinn Í myrkri eru allir kettir gráir.
Ungmennafélagið Narfi í HríseyFélagsmiðstöð unglinga í Hrísey.
Vorhlaup VMAVorhlaup VMA 2020.

UMMÆLI

Sambíó