Snapchat stjörnurnar frá Akureyri – Birkir bekkur

Snapchat er eitt mest notaða snjallsímaforrit á Íslandi í dag. Upprunalega var Snapchat einungis til þess að senda myndir til vina sinna sem hurfu eftir 10 sekúndur. Forritið hefur hinsvegar þróast töluvert síðan það kom fyrst út árið 2011. Nú er einnig hægt að fylgjast með lífi fólks í gegnum svokallaðar sögur sem það býr til. Þetta hefur vakið svakalegar vinsældir á Íslandi og hafa margir einstaklingar öðlast frægð í gegnum sögur sínar. Margir af frægustu „Snöppurum“ landsins koma frá Akureyri og Kaffið.is ákvað að heyra í þeim vinsælustu og kynnast þeim aðeins betur. Sá þriðji í röðinni er hinn hrikalegi Sigurbjörn Birkir Björnsson eða Birkir Bekkur.

Sjá einnig: Binni glee
Sjá einnig: Enski boltinn

Sigurbjörn Birkir Björnsson – birkirbekkur

Birkir Bekkur

Birkir Bekkur

Hvað ertu með marga followers á snapchat?

3300

Hvað eyðir þú miklum tíma á dag í snapchat?

Veit ekki.

Er snapchat að skila þér tekjum?

Nei

Færðu öðruvísi meðferð frá fólki útaf snappinu?

Ég hef þurft að eyða sumum útaf snappinu en annars ekki.
Hvað setur þu a snapchat?

Bara allt mögulegt, mat, labbitúra og hitt og þetta.

UMMÆLI