Vaðlaheiðargöng verða hluti af Hringveginum

Vaðlaheiðargöng verða hluti af Hringveginum

Hringvegurinn liggur nú um Vaðlaheiðargöng eftir að þau voru opnuð fyrir umferð. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar. Hringvegurinn styttist um 16 kílómetra við breytinguna.

Víkurskarð verður áfram opið og þjónustað. Gjaldtaka í göngin hefst frá 2. janúar næsta ári en þau verða formlega opnuð 12. janúar.

„Vaðlaheiðargöng voru opnuð óformlega fyrir umferð 21. desember sl. Hringvegur (1) liggur nú um jarðgöngin og styttist við það um 16 km. Göngin eru alls 7478 metrar, þar af 272 metrar í vegskálum. Hæð vegar við gangamunna í Fnjóskadal er 161 m y.s.,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

„Áfram verður hægt að fara veginn um Víkurskarð eftir Grenivíkurvegi (83) og Víkurskarðsvegi (84).  Víkurskarð er 325 m y.s., erfiður fjallvegur miðað við hæð og hefur verið einn helsti farartálmi Hringvegarins. Brekkur eru efiðar með 9% halla þar sem mest er. Aðalmarkmið með Vaðlaheiðargöngum er að losna við að fara yfir Víkurskarð, styttingin kemur svo að auki.“

Gjaldtakan í göngin er sjálfvirk þannig að tekin er mynd af númerum bíla  inni í göngunum som og stærð bíla er metin. Hafi bíll verið skráður á veggjaldavefinn ásamt kreditkortanúmeri greiðanda er veggjald dregið beint af viðkomandi kreditkorti. Sé bíll ekki skráður er sendur reikningur á skráðan eiganda ökutækisins og bætist innheimtukostnaður þá við veggjaldið.

Sjá einnig:

Svona gengur greiðslufyrirkomulagið í Vaðlaheiðargöngum fyrir sig – Sjáðu myndbandið

 

Sambíó

UMMÆLI