12 Akureyringar æfa með unglingalandsliðum í handbolta

Ásdís Guðmundsdóttir æfir með u20 liði Íslands

Helgina 29. september – 1. október hafa öll sex yngri landsliðs Íslands verið boðuð til æfinga.  Auk þess mun Háskólinn í Reykjavík mæla líkamlega getu allra leikmanna. Þá verður boðið uppá fyrirlestur á laugardagsmorgni þar sem komið verður inná ýmsa þætti sem nýtast afreksíþróttamönnum framtíðarinnar.

12 Akureyringar hafa verið boðaðir á æfingar. Hafþór Már Vignisson úr liði Akureyrar og Ásdís Guðmundsdóttir úr KA munu æfa með U20 ára liðum Íslands. KA mennirnir Dagur Gautason og Jónatan Marteinn Jónsson eru í U-18 hóp karla og Margrét Einarsdóttir, Ólöf Marín Hlynsdóttir og Svala Svavarsdóttir úr KA/Þór eru í U-18 hóp kvenna.

Þá eru þau Helga María Viðarsdóttir, Rakel Sara Elvarsdóttir, Arnór Ísak Haddsson, Haraldur Bolli Heimisson og Ragnar Sigurbjörnsson  í U-16 hóp hjá  kvenna og karla liðunum.

11 leikmenn sem boðaðir hafa verið til æfinga koma úr unglingastarfi KA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó