,,Akureyri er líklega besti staður á jörðinni“

Dario og Sabine ásamt börnum sínum á skútunni. Mynd: Northwestpassage.

Þetta segir svissneski loftslagsfræðingurinn og skíða- og fjallaleiðsögumaðurinn Dario Schwoerer. Hann var staddur í Akureyrarhöfn á dögunum ásamt fjölskyldu sinni í skútu sem þau hafa búið á þegar þau lentu í aftakaveðri. Í samtali við mbl.is segir hann hreint út sagt ótrúlegt hversu mikið af góðu fólki býr á Akureyri.

Dario og Sa­bine, kona hans, hafa siglt skút­unni Pachamama í heil 17 ár og hefur á þeim tíma tekist að sigla 100.000 sjómílur og heimsótt 100 lönd. Þau eiga saman sex börn sem fæðst hafa á ferðalagi þeirra um heim­inn ej yngsta barnið þeirra fæddist einmitt á sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri fyr­ir tveim­ur mánuðum og þess vegna ákváðu þau að hafa vet­ur­setu á Ak­ur­eyri. Með fjöl­skyld­unni í för er svo aðstoðarkonan Miriam.

Orðlaus yfir hjálparhönd Akureyringa
Björgunarsveit og lögreglu tókst að bjarga þeim á land þegar aftakaveðrið gerði vart við sig á sunnudaginn var en skútan varð fyrir töluverðum skemmdum. Pachamama var með landfestar við Torfunesbryggju og mjög illa varin fyrir suðaustanáttinni með þeim afleiðingum að festingar slitnuðu og skútan lamdist ítrekað við bryggjuna. Dario getur ekki þakkað öllu fólkinu nóg sem er búið að hjálpa þeim og kveðst hann vera steinhissa yfir hversu margir buðu fram aðstoð sína án þess að vilja neitt í staðinn, meira að segja fólk alla leið frá Ólafsfirði. Hvalaleiðsögumaðurinn Össur var fyrstur á staðinn og reyndi að komast út á bryggjuna til að hjálpa. Dario kýs að kalla Össur súperman eftir að honum tókst að koma fyrstu línunni í skútuna og kom þannig í veg fyrir að hún sykki.

 

Í frétt mbl.is er haft eftir Dario:
„Jó­hann­es Hjálm­ars­son hjá Eim­skip bauð okk­ur gám sem dótið okk­ar hef­ur verið flutt yfir í. Sjó­maður­inn Sverr­ir eyddi öllum gærdeginum í að hjálpa okkur að flytja dót úr skút­unni og leita lek­ans. Ann­ar sjó­maður Siggi passaði  svo yngsta barnið þeirra. Er­lend­ur Guðmunds­son kafari kom líka og hjálpaði. Hann var í ís­köld­um sjón­um í einn og hálf­an tíma að smyrja smjör­líki og smjör á kjöl­inn þar sem lek­inn er.“ Dario seg­ir hafa dregið það mikið úr lek­an­um við þenn­an gjörn­ing að hann gat tekið sér hvíld frá því að dæla vatni úr skút­unni og náði fyr­ir vikið fimm stunda svefni í nótt. „Nú er hins veg­ar vatnið tekið að koma inn aft­ur,“ seg­ir hann.
„Síðan hef­ur eig­andi hvala­skoðun­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Eld­ing­ar leyft okk­ur að dvelja í húsi leiðsögu­manna fyr­ir­tæk­is­ins,“ seg­ir Dario. Börn­in hafi verið þar í gær að drekka heitt kakó og svo hafa þau geta sofið þar.
„Við elduðum sviss­neska máltíð í gær sem þakk­lætis­vott fyr­ir allt fólkið sem er búið að vera að hjálpa okk­ur. Þetta fólk kom bara og hjálpaði og bað ekki um neitt í staðinn,“ seg­ir Dario „og mér finnst það al­veg frá­bært.“

Ólafur Jónsson hjá Slippnum á Akureyri ætlar að hitta Dario í dag og skoða skútuna til að sjá hvort að þeir geti gert eitthvað við hana.
Ei­rík­ur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri Ak­ur­eyr­ar, er einnig bú­inn að koma við hjá þeim í skút­unni til að skoða aðstæður og hafði nokkrar áhyggjur af framhaldinu. Finnur Aðalbjörnsson bauðst einnig til að útvega þeim krana til að lyfta skútunni í land. Dario segir í samtali við mbl.is að hann telji Finn vera svona mann sem lætur hlutina gerast.

Dario, Sabine og fjölskylda eru algjörlega orðlaus yfir allri hjálpinni sem þau hafa fengið og telja að ástæða þess sé að viðhorfið hér á landi sé gjörólíkt því sem þekkist annarsstaðar. Það eru allir að reyna að finna lausn á öllu í þeirra máli.

UMMÆLI