Ástþór er bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024

Ástþór er bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024

Ástþór Árnason hefur hlotið nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2024. Hann verður útnefndur við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Tjarnarborg fimmtudaginn 15. febrúar næstkomandi.

Við sama tilefni verða afhentir styrkir Fjallabyggðar til menningar- og fræðslumála, til hátíðarhalda, reksturs safna og setra og til grænna verkefna.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti, á fundi sínum fimmtudaginn 9. nóvember sl., að útnefna Ástþór Árnason Bæjarlistamann Fjallabyggðar árið 2024.

Ástþór Árnason er Siglfirðingur, fæddur 1992, og þegar orðinn landskunnur fyrir húðflúr sín. Hæfileikar Ástþórs á listasviðinu komu snemma fram og var hann ungur að árum er hann opnaði sína fyrstu myndlistarsýningu. Síðan þá hefur hann haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Hann lauk stúdentsprófi af listabraut við Menntaskólann á Tröllaskaga árið 2013 og hefur listsköpun verið hans aðalstarf síðan þá.

Ástþór hef­ur vakið mikla at­hygli fyr­ir glæsi­leg­ar tattú­skreyt­ing­ar sín­ar og þykja verk hans einkar fagmannlega unnin og vekja eftirtekt fyrir vönduð vinnubrögð, verkkunnáttu og sögð einstaklega lifandi og persónuleg. Ástþór er með vinnustofu á Siglufirði þar sem hann bæði húðflúrar og vinnur að öðrum verkum sínum. 

Sambíó

UMMÆLI