Bæjarstjórn Akureyrar sendir kveðju til Grindvíkinga

Bæjarstjórn Akureyrar sendir kveðju til Grindvíkinga

Fyrir hönd bæjarstjórnar Akureyrar og bæjarbúa sendir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri hlýjar kveðjur til Grindvíkinga í þeim hamförum sem nú ganga yfir.

Við finnum vart orð til að lýsa þeirri hryggð sem leggst yfir þjóðina, allt Ísland, nú þegar Grindvíkingar standa varnarlausir gagnvart svo ólýsanlegum og miskunnarlausum ofurkröftum náttúrunnar. Það er hörmulegt að fylgjast með glóandi hrauni lama þetta gróskumikla samfélag og leggja alla innviði í rúst.

Fyrir hönd bæjarbúa og bæjarstjórnar Akureyrar sendi ég íbúum Grindavíkur einlægar og hlýjar vinakveðjur með ósk um að allar góðar vættir veiti þeim styrk á erfiðum tímum.

Ásthildur Sturludóttir,
bæjarstjóri á Akureyri

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó