Beint úr 9.bekk í verkmenntaskólann

Sigurður Bogi Ólafsson

Þekkt er að hægt sé að sleppa 10. bekk í grunnskóla og fara beint á fyrsta ár í framhaldsskóla. Þetta er þó ekki hægt nema að undangengnu mati grunnskólanns til þess að ganga úr skugga um að nemendurnir séu námslega nægilega vel búnir undir að fara í framhaldsskóla ári fyrr en almennt gerist.

Dæmi um nemanda sem fór þessa leið er Sigurður Bogi Ólafsson, hann hóf nám sl. haust í grunnnámi rafiðngreina og er núna á annarri önn. Sigurður situr þór ekki auðum höndum þar sem hann vinnur einnig að tæknimálum vegna uppfærlsu Leikfélags VMA á Ávaxtakörfunni sem verður frumsýnd í Hofi snemma í febrúar. Einnig æfir hann alpagreinar skíðaíþrótta af krafti og mætir fimm sinnum í viku á æfingu.

“Það sem kveikti í mér að fara á þessa námsbraut var að haustið 2016 kom ég hingað í VMA í vali í Naustaskóla. Okkur gafst þá kostur á að kynna okkur ólíkar verknámsbrautir hér og mér fannst grunnnám rafiðna mjög áhugaverð. Ég hafði áhuga á að koma hingað strax eftir níunda bekk, mér fannst grunnskólinn satt best að segja ekki vera nógu krefjandi. Ég horfði til þess að fara í verknám, ekki síst vegna þess að eftir að hafa verið meira og minna í eintómu bóknámi í níu ár langaði mig til þess að læra eitthvað verklegt. Þetta varð niðurstaðan og ég sé ekki eftir því. Námið er fjölbreytt og skemmtilegt og kennslan fín. Ég ætla mér að taka stúdentspróf líka því ég veit að það opnar mér fleiri leiðir. Það var mín niðurstaða að með því að ljúka bæði verknámi og stúdentsprófi stæði ég vel að vígi,” segir Sigurður Bogi.

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó