Bjarni Ófeigur skrifar undir hjá KA

Bjarni Ófeigur skrifar undir hjá KA

Handboltamaðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA þar sem segir að ljóst sé að gríðarlegur liðsstyrkur sé væntanlegur fyrir komandi tímabil. Bjarni sem er 25 ára gamall leikur í vinstri skyttu og er auk þess öflugur varnarmaður.

Bjarni gengur í raðir KA frá þýska liðinu GWD Minden þar sem hann er í lykilhlutverki en hann gekk í raðir Minden fyrir núverandi tímabil. Þar áður lék hann í þrjú ár með sænska stórliðinu IFK Skövde en Bjarni lék ákaflega vel með sænska liðinu þar sem hann var í hópi bestu manna liðsins öll þrjú tímabilin og liðið lék meðal annars tvívegis til úrslita um sænska meistaratitilinn, árin 2021 og 2022.

Þá var Bjarni kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á Evrópumeistaramótinu í Ungverjalandi árið 2022 þar sem Ísland endaði í 6. sæti. Hann var þar áður fastamaður í yngrilandsliðum Íslands.

„Mér líst ótrúlega vel á að fá Bjarna norður og mjög spenntur að vinna með honum. Þetta er leikmaður á besta aldri og er öflugur á báðum endum vallarins þannig að já, ég er mjög spenntur að vinna með honum. Ég er handviss um að hann mun koma flottur inn í það verkefni sem við erum að vinna hér í KA með okkar unga lið. Ég hef bara heyrt góða hluti af Bjarna, hann æfir mjög vel og er með gott hugarfar. Hann mun hjálpa ungu strákunum okkar, hefur verið að spila sem atvinnumaður og veit hvað þetta snýst um. Þannig að við bindum miklar vonir við komu hans hingað norður,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson þjálfari KA við tíðindunum.

„Ég er ótrúlega spenntur að taka slaginn með KA næstu árin þar sem að ég hef bullandi trú á þessu liði og KA sem félagi. Hlakka til að mæta norður og spila í gulu treyjunni, áfram KA,“ sagði Bjarni í tilefni undirskriftarinnar.

„Það er klárt mál að það verður gífurlegur styrkur fyrir okkar spennandi unga lið að fá Bjarna í hópinn og verður spennandi að fylgjast með framgöngu þessa öfluga kappa í gula og bláa búningnum næstu árin. Við bjóðum Bjarna hjartanlega velkominn í KA,“ segir á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI