Einkasafnið í Deiglunni

Einkasafnið í Deiglunni

Myndlistarsýning Aðalsteins Þórssonar opnar föstudaginn 13. október kl. 20.00. 

Nú stendur fyrir dyrum stöðutaka á Einkasafni myndlistarmannsinns Aðalsteins Þórssonar í fjölnotasalnum Deiglunni í Listagilinu á Akureyri.  Hann hefur búið til alltumlykjandi innsetningu í salnum sem saman stendur af ljósmyndum, myndbandsverkum, ljósskúlptúr og fjölmörgum safnmunum úr Einkasafninu.
„Í verkefni mínu Einkasafninu geng ég út frá því að afgangar neyslu minnar séu menningarverðmæti, á svipaðan hátt og litið er á hafðbundna sköpun, afganga hugans sem menningarverðmæti. Ég leitast við að halda til haga öllu því sem af gengur af minni daglegu neyslu“. Þetta segir Aðalsteinn vera megin inntak Einkasafnsins. Verkefnis sem hann hefur unnið að síðan um aldamótin síðustu. Í þessu verkefni vill hann gera sýnilega stærð einstaklingsins í umhverfinu, efla umhverfisvitund og vinna að sjálfbærni. Samtímis því að skapa nýja fegurðarupplifun þar sem samtvinnast náttúrulifun og menningar upplifun.

Aðalsteinn Þórsson f. 1964 á Kristnesi í Eyjafirði. 1989 hóf hann nám í Myndlistaskólanum á Akureyri. Hann lauk MFA námi frá Dutch Artinstitute, ArtEz árið 1998, þá Aki2 í borginni Enchede í Hollandi, Aðalsteinn hefur verið starfandi myndlistamaður síðan þá. Aðalsteinn hefur verið búsettur á Íslandi síðan 2016, haldið fjölda einkasýninga, tekið þátt í samsýningum og viðburðum. Auk þess að starfa að félagsmálum í menningarinnar. Megin verkefni hanns er Einkasafnið, umhverfisverkerk sem hann starfrækir í Eyjafjarðarsveit 10 km. sunnan Akureyrar.

Einkasafnið er vaxandi safn sem hýsir það sem verður eftir af eigin neyslu, því sem er hent. Með þessu er reynt að gefa eins heillega mynd af fyrirferð einstaklingsins í umhverfinu og hægt er. Leitast er við að Einkasafnið sé sjálfbær eining hvað varðar orkuöflun og meðferð úrgangs. Með það að markmiði að vera í jafnvægi við náttúru og umhverfi. Safnið hefur verið í núverandi húsnæði frá 2018.

Sýningin er opin lau. 14., su. 15., fös. 20., lau.21., og su. 22. október, frá 14 – 17. í Deiglunni Kaupvangsstræti 23 á Akureyri.   

UMMÆLI