Átta ára drengur á hjóli slasaðist í umferðarslysi við SunnuhlíðSkjáskot af Google Maps

Átta ára drengur á hjóli slasaðist í umferðarslysi við Sunnuhlíð

Átta ára drengur á hjóli slasaðist alvarlega við gatnamót Skarðshlíðar og Sunnuhlíðar á fjórða tímanum í gær. Drengurinn kom niður brekku í Sunnuhlíð og lenti í hlið bíls sem keyrði eftir Skarðshlíðinni.

Drengurinn var með hjálm á höfði og er talið að hann hafi komið í veg fyrir að enn verr færi. Gatnamótin eru nokkuð varasöm og er talið að hvorki pilturinn né ökumaður bílsins hafi orðið hvor annars varir fyrr en um seinan.


UMMÆLI

Sambíó