Útkall barst vegna vélsleðaslyss við Sprengisandsleið klukkan fjögur í gær. Í kjölfarið var þyrla Landhelgisgæslunnar send á staðinn. Þetta kemur fram á mbl.is.
Þyrlan flutti slasaðan vélsleðamann til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri. Hún lenti á Akureyri um sex leytið í gær. Ekki fengust nánari upplýsingar um líðan vélsleðamannsins.
UMMÆLI