Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Fyrirtæki og stofnanir kynntu starfsemi sína fyrir ungmennum á Akureyri

Fyrirtæki og stofnanir kynntu starfsemi sína fyrir ungmennum á Akureyri

Síðastliðinn föstudag, 3. mars, var haldin Starfamessa í Háskólanum á Akureyri, þar sem 30 fyrirtæki og stofnanir kynntu starfsemi sína fyrir ungmennum. Þetta var í fimmta sinn sem að náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum Akureyrarbæjar standa fyrir Starfamessu.

„Um 750 grunnskólanemendum í 9. og 10. bekk af öllu Norðurlandi eystra var boðið að koma og kynna sér ólík störf. Þátttaka grunnskóla af öllu svæðinu var mjög góð en mikilvægt markmið messunnar er að jafna aðgengi ungmenna að kynningu sem þessari. Yfir þrjátíu fyrirtæki og stofnanir á svæðinu tóku þátt í Starfamessunni og kynntu störf innan sinna fyrirtækja sem eru fjölmörg og fjölbreytileg,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

Starfamessan var haldin í samstarfi við Háskólann á Akureyri sem lagði til húsnæði sitt og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem studdi við viðburðinn.

„Mikilvægt er að ólíkar starfsstéttir taki þátt svo að kynningin gefi sem fjölbreyttasta mynd af atvinnulífinu en meginmarkmiðið með Starfamessunni er að fræða ungt fólk um störf og menntun og þannig að stuðla að fjölbreyttum og líflegum vinnumarkaði í framtíðinni. Ungt fólk á aldrinum 14 – 16 ára stendur á tímamótum þar sem það stefnir á að mennta sig til að starfa við það sem fellur að áhugasviði þeirra. Á Starfamessunni fengu nemendur tækifæri til  að „snerta á“ atvinnulífinu, ræða við fólk sem hefur reynslu og skoða og viða að sér upplýsingum sem geta nýst þeim þegar grunnur verður lagður að menntunarmöguleikum og framtíðarstarfi,“ segir á Akureyri.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó