Guided by Earth í Mjólkurbúðinni

Guided by Earth í Mjólkurbúðinni

Dagrún Matthíasdóttir og Gunn Morstøl opna sýninguna Guided by Earth í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri á föstudaginn 27.október kl.16-19.

Á sýningunni sýna þær listaverk sem öll eru undir áhrifum frá náttúrunni. Dagrún er með ljósmynd og olíumálverk og Gunn textíl og ecoprint. Sameiginlegt verk þeirra á sýningunni er verkið friðar mandala sem byggist á því efni sem jörðin gefur. Gunn og Dagrún kynntust í umhverfislistaverkefninu Staðfugl Farfugl árið 2008 í Eyjafjarðarsveit og hafa síðan þá verið í reglulegu samstarfi með sýningar, í New York, í Noregi og á íslandi og síðast í janúar á þessu ári í KNR Kunstcenter í Molde í Noregi og á samsýningum í Ungverjalandi í ágúst. Umhverfislist er þeim mjög hugleikin ásamt fleiru, en Gunn starfaði sem viðburðastjóri Kunst I Natur umhverfislitaverkefni til fjölda ára og Dagrún er verkefnastjóri í verkefninu List í Alviðru í Dýrafirði.

Sýningin stendur 27.október-5.nóvember-

opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17

UMMÆLI