Gunnar fékk heiðursviðurkenningu sjálfboðaliða

Gunnar fékk heiðursviðurkenningu sjálfboðaliða

Gunnar Frímannsson sjálfboðaliði Eyjafjarðardeildar Rauða krossins á Íslandi fékk heiðursviðurkenningu sjálfboðaliða á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi þann 4. maí síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu Rauða krossins á Facebook en í umsögn um Gunnar kom m.a eftirfarandi fram:

„Gunnar Frímannsson hefur verið sjálfboðaliði Rauða krossins í hartnær 24 ár. Á þeim tíma hefur hann tekið þátt í fjölmörgum verkefnum félagsins, má þar m.a nefna flóttamannaverkefni, neyðarvarnir, íslenskuþjálfun og fataverkefni. Hann hefur jafnframt gegnt ýmsum trúnaðarstöfum fyrir félagið, en hann var í stjórn Rauða krossins á Íslandi 2006 – 2012, stjórn Akureyrardeildar Rauða krossins 2001 – 2006 og sem varamaður 2007 – 2012. Hann var svo formaður Rauða krossins við Eyjafjörð 2017 – 2023. Hann hefur jafnframt setið í kjörnefnd Rauða krossins á Íslandi frá 2020. Gunnar er jákvæður, traustur og afar bóngóður sjálfboðaliði.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó