Harður árekstur í Aðaldal

Harður árekstur í Aðaldal

Um kl. 11:00 í morgun varð umferðarslys á Norðausturvegi, skammt vestan við Laxamýri í Aðaldal. Lögregla er á vettvangi að rannsaka verksummerki og hefur þurft að loka fyrir umferð um veginn vegna rannsóknarinnar. Hjáleið er frá Tjörn, hjá Laxárvirkjun og gegnum Reykjahverfi til Húsavíkur. Reiknað er með að vettvangsvinnu lögreglu verði lokið um kl. 14:00. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

„Þarna varð mjög harður árekstur tveggja bíla. Í þeim voru alls 5 erlendir ferðamenn. Enginn þeirra er í lífshættu en allir voru fluttir á sjúkrahús á Akureyri til skoðunar,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan mun láta vitá Facebook síðu sinni þegar vegurinn verður opnaður fyrir almenna umferð á ný.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó