Hilda Jana á móti háhýsabyggð á Oddeyri og við Tónatröð

Hilda Jana á móti háhýsabyggð á Oddeyri og við Tónatröð

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar, vill ekki fá háhýsabyggð á Oddeyrinni né við Tónatröð eins og hugmyndir SS Byggis ganga út á. Segist Hilda Jana ætla að greiða atkvæði gegn þessum tillögum komi þær til meðferðar í bæjarstjórn.

Akureyri.net greindi frá hugmyndum SS Byggis í frétt í dag þar sem segir að SS vilji byggja fimm fjölbýlishús við Tónatröð ásamt bílageymslum undir öll húsin.

„Þar sem ég er bæjarfulltrúi á Akureyri þá er ég oft beðin um skoðun mína á ýmsum málum og þá ekki síst skipulagsmálum. Til þess að tala alveg skýrt þá vil ég sjá metnaðarfulla uppbyggingu á Akureyri og að við náum að fara upp úr hjólförum stöðnunar. Við verðum að horfa til þess að þétta byggð og nýta landrými sem best. Ég tel hins vegar líka mjög mikilvægt að horfa til fjölmargra annarra þátta s.s. ásýndar, umhverfis, almannarýmis o.s.frv. Á þeim forsendum er ég ekki hlynnt framkomnum hugmyndum um háhýsi á Oddeyrinni og í Tónatröð og mun greiða atkvæði gegn tillögum þess efnis komi þær til meðferðar í bæjarstjórn,“ skrifar Hilda Jana.

Sambíó

UMMÆLI