Hörður Áskelsson hlaut Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna

Hörður Áskelsson hlaut Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna

Akureyringurinn Hörður Áskelsson hlaut í gærkvöldi Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna á hátíð sem fór fram í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík í gærkvöld.

„Með mikilli auðmýkt þakka ég þann mikla heiður sem mér er sýndur hér í kvöld. Ég er óendanlega þakklátur fyrir öll þau tækifæri sem mér hafa gefist á löngum ferli til að iðka tónlist, fylgja eftir hugmyndum mínum allt frá því að mér var ungum manni treyst til að taka við kantorsstöðu í þjóðarhelgidómi á Skólavörðuholti sem þá var enn á byggingarstigi,“ segir Hörður meðal annars í þakkarræðu sinni.

„Það er mér sannur heiður að fá að afhenta þessi verðlaun í kvöld. Þetta er frumkvöðull sem hefur haft eldhjarta til að flytja tónlist og gleðja okkur. Gjörsamlega magnaður maður,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir sem sá um að kynna heiðursverðlaunahafa Íslensku tónlistarverðlaunanna 2024.

Í tilkynningu segir:

Hörður Áskelsson fæddist á Akureyri 22. nóvember 1953, sonur Áskels Jónssonar söngstjóra og organista frá Mýri í Bárðardal og Sigurbjargar Hlöðversdóttur, húsmóður, frá Djúpavogi. Hörður hóf tónlistarnám sjö ára að aldri á Akureyri og varð stúdent frá M.A. 1973. Hann lauk Tónmenntakennaraprófi 1975 og burtfararprófi í orgelleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hörður stundaði framhaldsnám við Robert Schumann tónlistarháskólann í Düsseldorf í Þýskalandi á árunum 1976 til 1981. Þaðan lauk hann A-prófi í kirkjutónlist með besta vitnisburði árið 1981.

Hörður var organisti Fríkirkjunnar í Hafnarfirði 1973 til 76 og organisti í Neanderkirche í Düsseldorf 1981 til 1982. Það ár kom hann heim og var ráðinn organisti og kantor Hallgrímskirkju. Því starfi gegndi hann frá 1982 til 2021. Á þessum tíma gegndi Hörður lykilhlutverki við uppbyggingu listalífs í Hallgrímskirkju. Hann stofnaði Mótettukór Hallgrímskirkju 1982 og stjórnaði honum frá upphafi. Hörður var stofnandi kammerkórsins Schola Cantorum frá 1996 og stjórnandi hans frá upphafi. Báðir þessir kórar hafa verið í fremstu röð íslenskra kóra um árabil.

Hörður hefur komið að frumflutningi fjölmargra tónverka sem hafa verið samin séstaklega fyrir hann og kóra hans, eftir íslensk samtímatónskáld. Þar að auki hefur hann flutt öll helstu kórverk sem um getur eftir helstu tónskáld heimsins. Hann hefur miðlað reynslu sinni við fjölbreytt kennslustörf, meðal annars sem kennari við ýmsa tónlistarskóla en einnig sem lektor í litúrgískum söngfræðum við guðfræðideild Háskóla Íslands. Hörður hefur ritað talsvert um tónlist auk þess að semja ógrynni af mótettum, sálmalögum og sönglögum um ævina.

Hörður hefur hlotið margskonar viðurkenningar fyrir stöf sín á sviði tónlistar, þar á meðal Íslensku tónlistarverðlaunin, Menningarverðlaun DV og Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Hann var útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2002 og hlaut riddarkross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2004. Hörður hlaut Liljuna, viðurkenningu þjóðkirkjunnar, árið 2002, fyrir ævistarf sitt sem kantor Hallgrímskirkju í Reykjavík og hið mikla tónlistarlega frumkvöðlastarf sitt.

Sambíó

UMMÆLI