Innleiðing samgöngusamninga við starfsfólk Akureyrarbæjar

Innleiðing samgöngusamninga við starfsfólk Akureyrarbæjar

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær tillögu Hildu Jönu Gísladóttur um samgöngusamninga hjá Akureyrarbæ.

„Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur áhuga á því að taka fyrstu skrefin við innleiðingu samgöngusamninga við starfsmenn sveitarfélagsins á árinu 2024, með það að markmiði að stuðla að vistvænni lífsstíl, bæta líðan og hvetja til þess að starfsfólk ferðist til og frá vinnu með öðrum hætti en á einkabílnum,“ segir í tillögu Hildu Jönu.

Samgöngusamningarnir verði hluti af aðgerðaáætlun umhverfis- og loftslagsstefnu sem nú þegar er í vinnslu. Mannauðs- og fjársýslusviði er falið að leggja fram tillögur að sviðsmyndum innleiðingu samgöngusamninga og kostnaði við þá. Bæjarstjórn taki að lokum afstöðu til þess hvaða sviðsmynd henti og gert verði ráð fyrir kostnaðinum við gerð fjárhagsáætlunar árið 2024.

Tillagan var samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

UMMÆLI

Sambíó