Kærleiksríkir nemendur afhentu veglega styrkiKatrín Una, Sigurbjörn Bogi og Noah

Kærleiksríkir nemendur afhentu veglega styrki

Fyrir tæpum mánuði hlupu nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar Ólympíuhlaup ÍSÍ og síðastliðinn þriðjudag var komið að því að afhenda styrki sem söfnuðust með áheitum í hlaupinu. Nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar hlupu samtals 715 kílómetra og söfnuðu  888.750 krónumsem skiptust milli þriggja verðugra málefna í Fjallabyggð.

Helmingur upphæðarinnar rann í styrktarsjóð fyrir fjölskyldu Elvíru Maríu Sigurðardóttur og hinn helmingurinn skiptist á milli þeirra Sigurbjörns Boga Halldórssonar og Noah Maricato Lopes.

Sigurbjörn og Noah komu til að veita styrknum viðtöku ásamt Katrínu Unu systur Elvíru sem tók á móti styrknum fyrir hönd fjölskyldunnar. Styrkþegarnir buðu síðan nemendum upp á kökur í eftirrétt í hádeginu.

Sjá fleiri myndir frá afhendingunni: HÉR


Frétt: Trölli.is

Sambíó

UMMÆLI