Kolbrún Gígja og Valþór Atli til vara hjá landsliðinu í pílukasti

Kolbrún Gígja og Valþór Atli til vara hjá landsliðinu í pílukasti

Þau Valþór Atli Birgisson og Kolbrún Gíga Einarsdóttir frá píludeild Þórs á Akureyri hafa verið valin sem varamenn fyrir landslið Íslands í pílukasti sem spilar á Norðurlandamóti WDF sem fer fram á Íslandi 23. til 25. maí næstkomandi.

Sjö manns frá píludeild Þórs tóku þátt í úrtaksæfingum fyrir landsliðsvalið. Pétur Rúðrik Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands í pílukasti, hefur nú valið átta karla og fjórar konur fyrir Norðurlandamótið.

„Segja má að Þórsarar nálgist landsliðið því þó félagið eigi ekki fulltrúa í landsliðinu voru þau Kolbrún Gígja Einarsdóttir og Valþór Atli Birgisson valin sem varamenn í landsliðið fyrir þetta mót,“ segir í tilkynningu á vef Þórs.

Í stuttum pistli á Facebook-síðu píludeildarinnar segir meðal annars: „Það gleður okkur að segja frá því að Valþór Atli og Kolbrún Gígja voru valin varamenn fyrir landslið Íslands í pílukasti. Gríðarlega flott viðurkenning á dugnað þeirra tveggja síðustu misseri. Þetta sýnir að við erum á góðri leið!“

Landsliðshópurinn sem nú hefur verið valinn æfir áfram eftir Norðurlandamótið og keppir um fjögur sæti karla og fjögur sæti kvenna á Evrópumóti WDF sem haldið verður í Slóvakíu í haust, en nýr úrtakshópur verður svo valinn eftir það mótt til að taka þátt í verkefnum á næsta ári.

Sjá frétt á vef Íslenska pílukastsambandsins. Mynd: thorsport.is

Sambíó

UMMÆLI