Menntskælingar orðnir þreyttur á rútum sem taka yfir bílastæði við skólann

Menntskælingar orðnir þreyttur á rútum sem taka yfir bílastæði við skólann

Nemendur í Menntaskólanum á Akureyri eru orðnir þreyttir á stöðugri rútuumferð á bílastæðum skólans í upphafi skólaársins samkvæmt Hrímfaxa, sjálfstætt starfandi miðils sem fjallar um það sem brennur á hugum menntskælinga á Akureyri.

„Rúturnar hafa fest bíla í stæðum sínum, stofnað gangandi vegfarendum í hættu og í þó nokkur skipti komið mjög nálægt því að valda árekstri. Er þessi umferð ný á nálinni en hefur þetta ekki verið svona síðastliðin ár, samkvæmt heimildum Hrímfaxa var lítið hægt að gera í málunum þar sem að Akureyrarbær hefur framlengt sumarsamninga við ferðaskrifstofur og því mun umferðin standa út septembermánuð,“ segir á vef Hrímfaxa.

„Þetta ástand á bíla­plan­inu er búið að vera frá því skól­inn var sett­ur í síðasta mánuði. Rút­urn­ar hafa verið að leggja á bíla­stæðunum sem eru bæði fyr­ir Mennta­skól­ann og heima­vist­ina. Þeim var lagt fremst á bíla­stæðin til að kom­ast með túrista í Lystig­arðinn,“ seg­ir Krista Sól Guðjóns­dótt­ir, for­seti nem­enda­fé­lags MA, í sam­tali við mbl.is.

Tveir nemendur skólans sem voru orðnir þreyttir á rútunum ákvaðu að standa fyrir því sem þeir kölluðu borgaralega uppreisn og lögðu bílum sínum sitthvoru megin við SBA rútu sem stóð í 6 stæðum á bílastæðinu. Bílunum var lagt löglega í stæðin.

„Lagðist þá mikill æsingur á mannskapinn en á staðnum voru fleiri rútur, leiðsögumenn á vegum SBA og þó nokkrir menntskælingar. Rútubílstjórar og leiðsögumenn jusu óyrðum yfir menntskælingana um hverskonar kynslóð væri að taka við landinu. Í öllum æsingnum stóð bílstjóri rútunar upp og hleypti úr tveimur dekkjum á bíl mennskælingsins sem var lagt fyrir framan rútuna, sem getur valdið gríðarlegu tjóni á dekkjum bíls. Hrópaði hann svo yfir mannskapinn að eigandi bílsins skyldi færa bílinn, sem er mjög óvenjulegt en aldei á að keyra á loftlausu dekki. Fór bílstjórinn þá aftur upp í rútuna og keyrði auðveldlega af stað án þess að neinn bíll hafi verið færður,“ segir í umfjöllun Hrímfaxa um viðburðinn.

Hrímfaxi hefur haft samband við SBA en ekki fengið nein svör. Samkvæmt umfjöllun Hrímfaxa hefur rútum verið lagt aftast á bílastæðunum síðan atvikið átti sér stað.

Á vef Hrímfaxa má sjá myndskeið frá atvikinu.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó