Óvissustig vegna jarðskjálftahrinu


Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra í dag.

Jarðskjálftahrina austan við Grímsey heldur áfram en undir morgun mældist skjálfti upp á 5.2. Umrætt svæði er þekkt jarðskjálftasvæði og var svipuð hrina í gangi á svæðinu 2013.

Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif stóri skjálftinn í nótt muni hafa á þau misgengi. Svæðið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu; misgengissvæði milli rekbeltanna sem liggja um Ísland og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg, og algengt er að þarna komi hrinur skjálfta. Síðasti stóri skjálftinn, 5.4 að stærð, var árið 2013 á þessum slóðum.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta. Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum.

Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu 48 klst.

UMMÆLI

Sambíó