Pabbinn finnur afann í Hofi

Pabbinn finnur afann í Hofi

Pabbinn finnur afann verður sýnt í HOF 11.nóvember. Verkið var frumsýnt í HÖRPU í febrúar og hlaut frábærar viðtökur.

Leikararnir Sigurður Sigurjónsson og Bjarni Haukur Þórsson leiða saman hesta sína að nýju í verkinu. Samstarf þeirra ættu flestir Íslendingar að þekkja því þúsundir hafa í gegnum tíðina séð uppsetningar þeirra og kvikmynd.

Nú hins vegar standa þeir saman á sviði í fyrsta skiptið. PABBINN FINNUR AFANN er að nokkru leiti vísun í leikverkin PABBINN, sem frumsýnt var í Iðnó 2007 og sýnt rúmlega hundrað sinnum um land allt, og AFINN sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu 2011 og einnig sýnt rúmlega hundrað sinnum um landið þvert og endilangt.

Í báðum sýningunum sem voru einleikir, ásamt HELLISBÚINN, HOW TO BECOME ICELANDIC og MAÐUR SEM HEITIR OVE sem og kvikmyndinni AFINN skiptu þeir félagar ávallt með sér verkum; á meðan annar lék, leikstýrði hinn. Nú í fyrsta skiptið standa þeir á saman á sviði. Sér til halds og trausts hafa þeir fengið góðvin sinn og vítamínsprautuna Guðjón Davíð Karlsson í leikstjórastólinn.

Fyrir utan miklar vinsældir á Íslandi hafa sýningarnar PABBINN og AFINN verið sýndar í yfir tuttugu löndum á undanförnum árum og notið mikilla vinsælda.

PABBINN FINNUR AFANN er glænýtt íslenskt verk sem er í senn mjög fyndið og hjartnæmt. Verkið segir frá tveimur mönnum (pabba og afa) á leið í golf til Tenerife, en vegna seinkunar þurfa þeir að hanga í marga klukkutíma á Keflavíkurflugvelli. Gríðarleg flughræðsla afans og erfiðleikar í hjónabandi pabbans, ásamt áskorunum í barnauppeldi, endalausum tækninýjungum og óumflýjanlegum eftirlaunaaldri eru aðeins nokkur af þeim krefjandi málum sem þeir félagar þurfa að kljást við á vellinum.

Höfundur: Bjarni Haukur Þórsson

Leikarar: Sigurður Sigurjónsson og Bjarni Haukur Þórsson

Leikstjóri: Guðjón Davíð Karlsson

Tónlist og leikhljóð: Frank Hall

Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánssson

Hreyfimyndahönnun: Steinar Júlíusson

Aðstoð við myndskreytingu: Natalia Bucior og Júlía Ósk Steinarsdóttir

Leikmunir: Eva Björg Harðardóttir

Raddir: Sigríður Eyrún Friðriksdóttir Dúna Pálsdóttir Hekla Jónsdóttir Viktor Óli Eiríksson Smith Aldís Leoni Rebora

Tæknistjórn: Óðinn Eldon

Framleiðsla: Íslenska leikhúsgrúppan ehf.

Sérstakar þakkir: RÚV.

Sigurður Sigurjónsson tekur þátt í uppfærslunni með góðfúslegu leyfi Þjóðleikhússins


UMMÆLI