Sannar gjafir frá Akureyri fóru til barna víða um heimÖll börn eiga rétt á hreinu vatni.

Sannar gjafir frá Akureyri fóru til barna víða um heim

Nú eins og síðastliðin jól eru Sannar gjafir UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna. Gjafir frá Íslandi bárust til barna um allan heim um síðustu jól og voru íbúar á Akureyri duglegir að nýta þennan möguleika til að hjálpa börnum í neyð. Í fyrra voru sem dæmi 2.595 skammtar af bóluefni gegn mænusótt frá Akureyri sendir til barna í Madagaskar, Sómalíu og Súdan. Ormalyf hjálpuðu börnum í Sýrlandi, Búrkína Fasó og Pakistan á meðan börn í Mjanmar, Benín og Haítí fengu hreint drykkjarvatn þökk sé þeim 263.500 vatnshreinsitöflum sem voru keyptar á Akureyri í gegnum Sannar gjafir UNICEF. Þetta eru einungis örfá dæmi um gjafir sem ferðuðust til barna í neyð í fyrra og stefnir í að enn fleiri börn muni njóta góðs af Sönnum gjöfum frá Íslandi þetta árið.

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð. Þær eru stórsniðugar jólagjafir, leynivinagjafir og jólakort fyrir vini og fjölskyldu en mikið úrval í öllum verðflokkum má finna á www.sannargafir.is. Íslensku jólasveinarnir hafa líka uppgötvað hversu sniðugar gjafirnar eru í litla skó úti í glugga.

Gjöfin er keypt í nafni þess sem þú vilt gleðja og UNICEF sér síðan til þess að koma hjálpargögnunum til barna þar sem þörfin er mest.

Ungur drengur fær ormalyf frá hjálparstarfsmanni á vegum Unicef.

Jarðhnetumauk vinsælast

Vinsælasta gjöfin á Akureyri í fyrra var vítamínbætt jarðhnetumauk, en alls seldust 6.675 pokar af jarðhnetumauki sem hjálpa börnum sem þjást vegna vannæringar. Jarðhnetumaukið nýttist meðal annars börnum í Afganistan, Senegal og Bangladess. Einnig keyptu Akureyringar 37 ofurhetjupakkasem innihalda blöndu af lífsnauðsynlegum hjálpargögnum, meðal annars bóluefni gegn mislingum og mænusótt, 50 skammta af jarðhnetumauki og kælibox fyrir bóluefnin.

„Allar gjafirnar eiga það sameiginlegt að bæta líf barna sem þurfa á hjálp okkar að halda. Það er því yndislegt að sjá hversu margir kjósa að gefa Sannar gjafir um jólin,“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir hjá UNICEF á Íslandi. „Í vefversluninni okkar má finna mikið úrval af gjöfum sem koma að góðum notum og geta bjargað lífi barna. Nú er til dæmis mikil þörf fyrir vítamínbætt jarðhnetumauk og næringarmjólk til að bjarga börnum sem eru alvarlega vannærð, til dæmis í Jemen.“

Það tekur enga stund að versla jólagjafirnar í vefverslun UNICEF, www.sannargjafir.is. Sannar gjafir eru í öllum verðflokkum og eru til dæmis sniðugar jólagjafir fyrir þá sem eiga allt, hlýleg jólakveðja til vina og fjölskyldu erlendis eða skemmtileg tækifærisgjöf til að gleðja leynivininn í vinnunni.

Mikið úrval af hjálpargögnum í vefverslun Unicef.

Hér má sjá nokkur dæmi að góðum jólagjöfum sem bæta líf barna:

Vatnshreinsitöflur galdra fram drykkjarhæft vatn

Milljónir barna hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni eins og við erum vön hér heima.Vatnshreinsitöflur eru sendar á svæði þar sem hreint vatn er af skornum skammti. Þessar bráðsniðugu töflur geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu vatni og með því komið í veg fyrir útbreiðslu lífshættulegra smitsjúkdóma.

 

Jarðhnetumauk gerir kraftaverk fyrir vannærð börn

Vítamínbætt jarðhnetumauk gegnir lykilhlutverki á svæðum þar sem börn eru í lífshættu vegna vannæringar, meðal annars í Bangladess, Mið-Afríkulýðveldinu og Jemen. Jarðhnetumaukið inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni sem börn þurfa og gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá pakka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.

Ormalyf í jólapakkann

Ormalyf eru kannski ekki glamúrgjöfin í ár en ormalyf hafa sannarlega mikið notagildi! Á hverju ári látast skelfilega mörg börn af völdum vannæringar vegna sníkjudýra í meltingarvegi. Sníkjudýrin ræna börnin nauðsynlegum næringarefnum og gera þau bæði máttvana og varnarlaus gegn sjúkdómum. Lyfin hjálpa börnum að losna við sníkjudýrin og þau skelfilegu óþægindi sem þeim fylgja.

Sambíó

UMMÆLI