Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Stofna rafíþróttadeild í HríseyElín Árnadóttir ásamt stjórn Umf. Narfa, Díana, Hrund og Ingólfur. Mynd: Hrisey.is

Stofna rafíþróttadeild í Hrísey

Menja ehf, sem er í eigu hjónanna Árna Ólafssonar og Elínar Árnadóttur hefur styrkt Ungmennafélagið Narfa í Hrísey um rúmar 2 milljónir króna til þess að hægt sé að stofna rafíþróttadeild fyrir börn og unglinga í Hrísey.

Styrkurinn fer í það að kaupa búnað og allt sem til þarf. Keyptar verða 5 fullbúnar tölvur, skjáir og fylgihlutir ásamt Playstation 5 leikjatölvu. Áætlað er að rafíþróttaæfingar hefjist á eynni á næstu vikum.

„Áhugi á rafíþróttum hefur farið vaxandi á undanförnum árum þar sem áhersla er lögð á að tvinna saman tölvuleikjaspilun, hreyfingu og heilsu og munu krakkar í Hrísey nú fá tækifæri til að æfa rafíþróttir við bestu mögulegu aðstæður. Samstarf verður við rafíþróttadeild Þórs á Akureyri varðandi útfærslu á starfinu,“ segir í tilkynningu á Hrisey.is.

„Við í stjórn UMF Narfa eigum ekki orð til að lýsa þakklæti okkar fyrir hönd félagsins en færðum Ellu blómvönd með þakklætiskveðjum til þeirra hjóna við þetta tilefni.“

Sambíó

UMMÆLI