Stórleikurinn gefur út sinn fyrsta þátt

Stórleikurinn gefur út sinn fyrsta þátt

Stórleikurinn nefnist þáttur sem upphaflega hóf göngu sína í útvarpi á stöðinni Útvarp Akureyri í desember á síðasta ári, nú hefur þátturinn gefið út sinn fyrsta „sketchaþátt“ en það eru stutt leikin atriði. Stórleikurinn stefnir á að gefa út fleiri þætti af þessu tagi reglulega í sumar.

Mennirnir á bakvið þættina eru Almar Vestmann, Daníel Örn og Skarphéðinn Þorvaldsson en á dögunum héldu þeir frumsýningarteiti fyrir þennan fyrsta þátt og troðfylltu þeir Ölstofu Akureyrar.

Þáttinn má sjá hér að neðan.


UMMÆLI

Sambíó