Vaðlaheiðargöng töpuðu 1,3 milljörðum króna árið 2022

Vaðlaheiðargöng töpuðu 1,3 milljörðum króna árið 2022

Vaðlaheiðargöng hf. töpuðu rúmlega 1,3 milljörðum króna á árinu 2022. Það er umtalsverð aukning á tapi frá árinu áður, þegar tapið var 885 milljónir króna. Þetta kemur fram í umfjöllun Heimildarinnar.

Rekstartekjur félagsins jukust úr 603 milljónum króna í 641 milljón króna á milli ára. Stök ferð í gegnum göngin kostar nú 1650 krónur.

Íslenska rík­ið breytti fimm millj­örð­um króna af skuld Vaðla­heið­ar­ganga í hluta­fé á síðasta ári. Ríkið á nú 93 pró­sent í fé­lag­inu, sem átti upprunalega að vera einkafram­kvæmd.

Nánari umfjöllun má finna á vef Heimildarinnar.

UMMÆLI