10 bestu – Hans Jónsson

10 bestu – Hans Jónsson

Hans Jónsson er gestur Ásgeirs Ólafs í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu.

„Hans Jónsson, er transmaður og öryrki. Hann segir okkur alla söguna. Hvenær hann komst að því og ferlið allt sem er í sjálfu sér ótrúlegt að hlusta á.Hann segist vera nörd og skilgreinir hann hvers vegna. Hann er baráttumaður og á erfitt með að láta umræðu bara liggja en þarf sitt speis og fer reglulega inn í sína eigin bubblu eins og hann orðar það sjálfur. Hann er giftur og býr eiginmaður hans í Kanada. Hann er í framboði en hann vill ekki verða Þingmaður. Hann kýs einfaldara líf. Hann er mikill tungumálamaður með beinskeitta rödd og veldur henni vel þegar ég spurði spurningarinnar sem alls ekki má spyrja. Hlustaðu á einstakt viðtal við þennan lífsglaða náunga sem gengið hefur í gegnum ýmislegt.Þetta er eiginlega skylduáhlustun,“ skrifar Ásgeir um þáttinn sem er í spilaranum hér að neðan.

Hlaðvörp á Kaffinu eru tekin upp í Podcast Stúdíói Akureyrar


UMMÆLI

Sambíó