10 bestu – Hulda hjá Hjartalagi

10 bestu – Hulda hjá Hjartalagi

Hulda hjá Hjartalagi var gestur í hlaðvarpinu 10 bestu með Ásgeiri Ólafs á dögunum. Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

„Hulda hjá Hjartalagi kom og spjallaði við mig þennan fallega morgun. www.hjartalag.is. Hulda er alveg einstök. Hún ólst upp í sveit og elskar enn sveitina. Hún lendir í grimmu einelti í grunnskóla og flytur á Stórutjarnir í 9. bekk og kynnist þá fyrst skólavist sem átti eftir að verða svo bestu ár ævi hennar á vistinni í Menntaskólanum á Akureyri. Hulda elskar að dansa og að vinna börnin sín þrjú í spilum. Hulda elskar Ítalíu. Hún bjó á Ítalíu 1992 og heimsótti svo aftur þær ,,heimsalóðir“ 30 árum síðar. Hún er fatahönnuður, grafískur hönnuður, markþjálfi og dáleiðari svo eitthvað sé nefnt. Þegar ég spurði hana hvenær hún ætlaði að hætta að mennta sig þá var svarið einfalt. Aldrei. Hulda rekur hjartalag.is og hefur gert það frá árinu 2013,“ segir Ásgeir.

Sambíó

UMMÆLI