16 staðfest smit og 447 í sóttkví á Norðurlandi eystra

16 staðfest smit og 447 í sóttkví á Norðurlandi eystra

16 smit eru nú staðfest á Norðurlandi eystra samkvæmt nýjustu tölum frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Nýjustu tölur voru birtar kl. 13 í dag inn á covid.is.

Sjá einnig: Ekki með tölur yfir staðfest smit á Akureyri

Smituðum einstaklingum hefur fjölgað um þrjá frá því gær þegar 13 voru smitaðir. Í fyrradag voru 11 smitaðir. Einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað úr 412 í 447 frá því í gær.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó