24 milljónir til stígagerðar á GlerárdalLjósmynd úr skýrslu Umhverfisstofnunar um stjórnunar- og verndaráætlun Glerárdals./Akureyri.is

24 milljónir til stígagerðar á Glerárdal

Akureyrarbær hlaut í vikunni 24 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna annars áfanga stígagerðar og brúunar í fólkvanginum á Glerárdal. Þetta kemur fram á vef bæjarins í dag.

Framkvæmdir hófust síðasta sumar við gerð stígs sem mun liggja fram Glerárdal að austan, frá bifreiðastæði að Lamba, skála Ferðafélags Akureyrar. Verkefninu er skipt í þrjá hluta og í fyrra fékkst styrkur vegna fyrsta áfangans. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að fleiri hafi lagt leið sína fram á dalinn eftir að stígagerð hófst.

„Áfram verður haldið af fullum krafti, fyrir tilstuðlan þessarar úthlutunar, og byrjar næsti áfangi fjóra kílómetra inn á dalnum. Í verkinu felst að rista fyrir stíg og setja stalla í hann, einnig að koma fyrir ræsum og brúun mýrlendis og lækja á um fjögurra kílómetra kafla,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

„Búið er að vinna skipulagsvinnu og teikna upp gönguleiðirnar samkvæmt samþykktum uppdrætti fólkvangsins. Stjórnunar- og verndaráætlun fólkvangsins var staðfest 2018 og eru allar framkvæmdir háðar samþykktum umhverfisstofnunar.“

UMMÆLI