Áheyrnarprufur fyrir Vorið vaknar

Áheyrnarprufur fyrir Vorið vaknar

Leikfélag Akureyrar stendur fyrir áheyrnarprufum fyrir söngleikinn Vorið vaknar (e. Spring Awakening) í maí. Æskilegur aldur þátttakenda er 17-27 ára.

Sjá einnig: Vorið vaknar söngleikur næstur á dagskrá hjá MAk

Áheyrnarprufurnar fara fram í Reykjavík 17. og 18. maí og á Akureyri 20. og 21. maí. Áhugasömum er bent á að skrá sig á www.mak.is en þar eru frekari upplýsingar og slóð á þau lög sem þátttakendur þurfa að kunna fyrir prufuna. Einnig verður sena úr verkinu send í tölvupósti til allra þátttakenda. Í prufunum verður prufað í leik, söng og dansi. Þátttakendur eru beðnir um að koma vel undirbúnir til leiks.

Vorið vaknar er margverðlaunaður söngleikur sem byggður er á samnefndu þýsku leikriti frá 1891 eftir Frank Wedekind og fjallar um tilfinningarót, sjálfsuppgötvun og fyrstu kynlífsreynslu unglinga í afturhaldssömu og þröngsýnu samfélagi 19. aldarinnar. 

Uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006, með leikkonuna Leia Michele innanborðs, hlaut átta Tony Awards og þar á meðal sem besti nýi söngleikurinn. Uppsetningin vann þar að auki fjölda annarra verðlauna og tilnefninga.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra verkinu en listrænir stjórnendur eru þeir sömu og í söngleiknum Kabarett sem Leikfélag Akureyrar setti upp í byrjun þessa leikárs. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson verður tónlistarstjóri, Auður Ösp Guðmundsdóttir sér um leikmynd og búninga, Ólafur Ágúst Stefánsson lýsinguna og danshöfundur verður Lee Proud.

Vorið vaknar verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri í janúar 2020.

Sambíó

UMMÆLI