Aldís Kara valin skautakona ársins

Aldís Kara valin skautakona ársins

Aldís Kara Bergþórsdóttir, skautakona úr Skautafélagi Akureyrar hefur verið valin Skautakona ársins 2019 af stjórn skautsamabands Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem hún hlýtur titilinn skautakona ársins.

Fyrir utan innlend mót á vegum ÍSS á árinu 2019 hefur Aldís Kara keppt á RIG, Norðurlandamóti, Junior Grand Prix  og á Halloween Cup.

Hún byrjaði árið á því að bæta stigamet hjá íslenskum skautara á RIG. Þá hlaut hún 103,52 stig á Norðurlandamótinu sem er hæsti stigafjöldi sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti.

Nýtt keppnistímabil hófst svo með því að Aldís keppti fyrir Íslands hönd á Junior Grand Prix mótaröðinni þar sem hún bætti stigamet íslensk skautara á þessari mótaröð og endaði með 106,43 stig.

Aldís bætti Íslandsmet í frjálsu prógrammi á Haustmóti ÍSS 2019 en þar fékk hún 82 stig fyrir frjálst prógram en samanlagt 116,09 stig sem var einnig persónulegt met og nýtt Íslandsmet í heildarstigum. Á Halloween Cup náði Aldís Kara lágmarks tæknistigum ISU í stuttu prógrammi fyrir ISU Junior Worlds og er það mót opið alþjóðlegt mót. Aldís Kara hélt áfram að bæta sig persónulega og bætti eigið Íslandsmet á Vetrarmóti ÍSS þar sem hún endaði með 127,69 heildarstig. Hún lauk svo árinu með stæl og endaði sem Íslandsmeistari í Junior Ladies 2019 með 118,22 heildarstig.

Á vef skautasambands Íslands segir um Aldísi að hún sé kappsfullur íþróttamaður sem leggur sig fram í íþrótt sinni. Hún sé yngri iðkendum góð fyrirmynd bæði í framkomu og viðhorfi til íþróttarinnar.

Sambíó

UMMÆLI