Anna María í  fjórða sæti á EM í bogfimi í Slóveníu

Anna María í fjórða sæti á EM í bogfimi í Slóveníu

Anna María Alfreðsdóttir lenti í fjórða sæti á EM U21 ára í Slóveníu. Hún mætti Ipek Tomruk frá Tyrklandi í æsispennandi leik um þriðja sætið á mótinu á laugardaginn.

Leikurinn byrjaði mjög jafn. Anna María byrjaði einu stigi undir í fyrstu umferðinni 28-29. Stelpurnar jöfnuðu svo næstu umferð báðar með fullkomið skor 30-30 og jöfnuðu svo aftur umferð þrjú 29-29 og staðan var því 87-88 í leiknum og tvær umferðir eftir. Í fjórðu umferð náð sú Tyrkneska að auka forskotið í 3 stig Anna skaut 27 og sú Tyrkenska 29. Anna átti svo flotta loka umferð 29 en sú Tyrkneska gaf ekki færi á sér og skaut fullkomið skor í síðustu umferðinni 30 og tók brons leikinn 147-143.

„Þetta var mjög flott frammistaða hjá Önnu bæði í brons leiknum og á mótinu í heild sinni en svona er þetta þegar verið er að keppa á hæsta stigi minnsti munur er munurinn á sigri eða tapi og dagsformið segir oft meira til um úrslit en getustig,“ segir í tilkynningu á Archery.is.

Anna María sló fimm Íslandsmet á EM.Íslandsmet í útsláttarkeppni trissuboga kvenna U21, landsliðs Íslandsmet í undankeppni liða trissuboga kvenna U21 og sama met í Opnum flokki (fullorðinna), og landsliðs Íslandsmet útsláttarkeppni liða trissuboga U21 og sama met í Opnum flokki (fullorðinna)

Anna endaði í 5 sæti í liðakeppni eftir 229-222 tap gegn Ítalíu í 8 liða úrslitum á EM ásamt liðsfélögum sínum Söru Sigurðardóttir og Freyju Dís Benediktsdóttir. Liðsfélagar Önnu duttu út í 32 manna lokakeppni EM á gegn keppendum frá Bretlandi og Danmörku.

UMMÆLI