Aron Einar að snúa aftur í landsliðið

Aron Einar að snúa aftur í landsliðið

Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson verður valinn í íslenska landsliðið á nýjan leik í dag samkvæmt mbl.is. Ísland mæt­ir Venesúela í vináttu­lands­leik 22. sept­em­ber og Alban­íu í 2. riðli B-deild­ar Þjóðadeild­ar UEFA 27. sept­em­ber.

Aron hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan 8. júní 2021 í vináttulandsleik gegn Póllandi.

Ríkissaksóknari felldi á dögunum niður mál gegn Aroni og Eggerti Gunnþóri Jónssyni sem voru sakaðir um að hafa nauðgað konu í Kaupmannahöfn árið 2010.

Aron Einar var fyrirliði landsliðsins í besta liði sem Ísland hefur átt og leiddi liðið á tvö stórmót í knattspyrnu. Þau fyrstu í sögu Íslands. Hann er í dag leikmaður Al Arabi í Katar.

Landsliðshópurinn verður staðfestur eftir hádegi í dag.

Eldri frétt: Aron Einar ekki í landsliðshópnum – Arnar segist hafa tekið ákvörðunina sjálfur


UMMÆLI

Sambíó