Bryndís Brynjarsdóttir sýnir verk í vinnslu

Bryndís Brynjarsdóttir sýnir verk í vinnslu

Bryndísar Brynjarsdóttur opnar sýningu í Deiglunni um helgina, 27. – 28. Júní kl. 14 – 17. Bryndís er gestalistamaður Gilfélagsins í júnímánuði. Sýningin er af afrakstri vinnustofudvalarinnar þessar 3 vikur og eru verkin enn í vinnslu flest af þeim, sýningin ber því ekkert nafn. Verkin verða síðan unnin áfram fyrir einkasýningu.

Bryndís er frá Dalvík en hefur búið í Mosfellsbæ í 22 ár. Hún stundaði myndlistarnám bæði við Myndlistaskóla Akureyrar og Myndlista- og handíðaskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist árið 1999. Frá útskrift hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði á Íslandi og erlendis og haldið fjölmargar einkasýningar með olíumálverkum og þrívíddarverkum úr áli og gleri. Myndlist Bryndísar hefur verið í ætt við strangflatarmálverk og undir áhrifum arkitektúrs. Formin á myndfletinum stærðfræðileg á mörkum tví- og þrívíddar. Það sem m.a. hafa einkennt verkin er stærðin en flest eru þau stærri kantinum bæði þrívíddarverkin og málverkin.

Undanfarin 2 ár hefur Bryndís hins vegar verið að þróa annars konar verk eða efnistök og notast að mestu við pappír og akrýlliti. Frumformin hafa vikið fyrir öllu lífrænni formum sem minna sumpart á undirdjúpin. Höfundareinkennin eru þó skýr þar sem samspil lita og forma hefur ávalt verið megið stefið í verkum Bryndísar. Í dag er það flæðið og frelsið sem skapar verkin og oftast er teiknað með penna beint á myndflötinn þannig að ekki er verið að breyta neinu í teikningunni. Útkoman er eins konar munstur sem teiknast upp og hreyfingin sem næst fram er þetta samspil lita og forma á fletinum.

Vinnustofudvölin á Akureyri er kærkomin í því þróunarferli sem er framundan og er dvölin hugsuð sem undirbúningur fyrir einkasýningu árið 2021. En ásamt því að sinna myndlistinni starfar Bryndís einnig sem grunnskólakennari. Hún er með kennsluréttindi og MA gráðu í menningarstjórnum frá Háskólanum á Bifröst. Bryndís hefur unnið ötullega að menningarmálum í Mosfellsbæ bæði sem varaformaður og formaður menningarmálanefndar í Mosfellsbæ. Unnið m.a. að stefnumótun listasalarins í Mosfellsbæ sem búinn er að marka sér sess í menningarlífi höfuðborgarsvæðisins.

Sambíó

UMMÆLI