Byrjað að reisa nýju siglingahöllina

Byrjað að reisa nýju siglingahöllina

Starfsmenn Sigurgeirs Svavarssonar ehf hófu í morgun að reisa nýja Nökkvahúsið. Þetta kemur fram á vef Siglingaklúbbsins Nökkva í dag.

Þar segir að byrjað hafi verið á þeim hluta þar sem búningaaðstaða verður.

„Hraði framkvæmda nú í desember mun ráðast af veðrinu. Þannig að nú vonumst við eftir hagstæðu veðri næstu vikur svo allt gangi að óskum.  Við kjör aðstæður má búast við að það taki um tvær og hálfa viku að ljúka uppsetingu húsins. Jólin koma svo sannarlega snemma í ár hjá siglingamönnum,“ segir á vef Nökkva.

Sambíó

UMMÆLI