Ekkert AK Extreme árið 2023

Ekkert AK Extreme árið 2023

Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme verður ekki haldin á Akureyri árið 2023. Í tilkynningu frá eigendum og skipjuleggjendum hátíðarinnar segir að óvæntar aðstæður og breyttar forsendur á lokastigum skipulagningar hafi orðið til þess að ekki verð unnt að halda Ak Extreme 2023 eins og áætlað var.

„Okkur þykir það mjög miður, ekki síst vegna þeirra vina okkar, fjárfesta, listafólks og gesta sem voru farin að hlakka til að upplifa og njóta og láta hlutina gerast. Við erum komin á fullt í skipulagningu og hugmyndasöfnun fyrir eitthvað æðislegt á næsta ári. Og hver veit nema það verði fyrr. Þangað til: Ást og friður!“ segir í tilkynningunni.

Sambíó

UMMÆLI