Falsaðir tíu þúsund króna seðlar í umferð á Norðurlandi

Falsaðir tíu þúsund króna seðlar í umferð á Norðurlandi

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur undanfarið fengið þrjú mál á sitt borð sem varða viðskipti aðila með falsaða 10 þúsund króna seðla. Lögreglan segir að seðlarnir séu frekar illa falsaðir en geti samt farið fram hjá afgreiðslufólki. Þannig nái menn að svíkja út vörur og þjónustu.

„Við viljum beina því til ykkar að vera á varðbergi gagnvart þessu. Ef ykkur grunar að seðill sé falsaður þá endilega hafið samband við okkur í síma 444-2800 eða í gegn um 112. Með bestu kveðju og von um að þið hafið það sem best. Lögreglan Norðurlandi eystra,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Sambíó

UMMÆLI