„Ferlið í raun ekkert annað en óboðlegt“

„Ferlið í raun ekkert annað en óboðlegt“

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, sat í morgun fund með dómsmálaráðherra, fangelsismálastjóra, nýjum lögreglustjóra Norðurlands eystra, bæjarstjóra og bæjarstjórn Akureyrarbæjar vegna fyrirhugaðrar lokunar fangelsisins á Akureyri. Hún segir að eftir fundinn hafi hún orðið enn svekktari með ákvörðun stjórnvalda um að loka fangelsinu.

„Stundum fara af stað heiftúðlegar umræður í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum sem einkennast af hálfkveðnum vísum og röngum upplýsingum, en síðan þegar fólk sest niður og talar saman þá eyst skilningurinn manna á milli og myndin skýrist. Sú varð því miður ekki raunin í morgun. Ég varð enn svekktari eftir fundinn en fyrir hann, ferlið er í raun ekkert annað en óboðlegt,“ skrifar Hilda Jana á Facebook síðu sinni í dag.

Hún segir að ekkert samráð hafi verið haft við lögregluembættið á Akureyri né bæjarstjórn. Gögn málsins séu takmörkuð og framtíðarsýn ekki sannfærandi.

„Svo virðist sem fangelsismálin hafi verið skoðuð einangrað án þess að horfa til samlegðaráhrifa við starf lögreglunnar hér og hvað þá að tillit væri tekið til byggðasjónarmiða. Það er gömul saga og ný að óvinsælar ákvarðanir eru teknar í júlí þegar flestir eru í sumarfríum og vilja frekar hlusta á fossanið og fuglasöng en að pirra sig á pólitík. Það er ekki nóg með að ákvörðunin sé kynnt í byrjun júlí og eigi taka gildi í lok júlí, heldur var á þeim tíma var ekki búið að ráða nýjan lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, hún tók til starfa í gær,“ skrifar Hilda Jana.

Hún tekur fram að þó hún sé mjög ósátt með þetta mál sé hún mjög ánægð með það að dómsmálaráðherra ætli sér að beita sér fyrir því að stytta boðunarlista í fangelsi, enda um ákaflega mikilvægt verkefni að ræða.

„Þá er ég einnig ánægð með að hún hafi komið og fundað með okkur og hlustað á það sem við höfðum fram að færa. Ég bind enn vonir við að dómsmálaráðherra hætti við þessa ákvörðun eða a.m.k fresti henni og nýti tímann til að fara faglega og heilstætt yfir málið. Ég tel nokkuð ljóst að engin sátt verði um þessi málalok.“

UMMÆLI

Sambíó