Fjórir handteknir eftir að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum

Fjórir handteknir eftir að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum

Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í vikunni í kjölfar þess að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum. Tjón af völdum sprengingarinnar er talið nema milljónum króna og orsakaði meðal annars ljósleysi í Ólafsfjarðargöngum. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunna.

Þar segir að málið sé litið alvarlegum augum. „Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðinga hennar við framkvæmdir á húsleitum á Ólafsfirði á miðvikudag. Fjórir voru handteknir vegna málsins bæði í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglustjórans á Suðurnesjum. Aðgerðirnar voru hluti af rannsókn lögreglunnar á athæfi sem hefur í för með sér almannahættu. Málsatvik liggja að mestu fyrir eftir skýrslutökur hjá lögreglunni á Akureyri og á Suðurnesjum en frekari rannsókn stendur yfir. Fólkinu sem allt er á fertugs- og fimmtugsaldri hefur verið sleppt úr haldi lögreglu,“ segir í tilkynningu.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó