Fólk sem á erindi á milli Borgarness og Akureyrar beðið um að fresta för ef kostur er

Fólk sem á erindi á milli Borgarness og Akureyrar beðið um að fresta för ef kostur er

Vegna bikblæðinganna sem eru víða á leiðinni á milli Borgarness og Akureyrar hvetur Vegagerðin almenning til að fresta för um a.m.k. sólarhring er þess er nokkur kostur og fylgjast með framvindunni á morgun og næstu daga. Ef það er ekki mögulegt eru ökumenn hvattir til að aka varlega og eins og alltaf og ætíð eftir aðstæðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni í dag.

Sjá einnig: Miklar tjörublæðingar á norðurleið

Vegagerðin hefur einnig óskað eftir því við flutningaaðila, þá sem sinna vöruflutningum og annari umferð þungra ökutækja, að þeir geri þrennt. Lækki loftþrýsting til að minnka álag, minnki farm og létti þannig ökutækið og dreifi álaginu á vegakerfið svo sem kostur er með því að flutningur fari ekki allur fram á svipuðum tíma dags. 

Sambíó

UMMÆLI