Foreldrar almennt ánægðir með skólamáltíðir á Akureyri

Foreldrar almennt ánægðir með skólamáltíðir á Akureyri

Samkvæmt nýjustu upplýsingum úr Skólapúlsinum eru 97 prósent foreldra leikskólabarna á Akureyri sem telja að barnið sitt fái hollt fæði á leikskólanum. Þá eru 74 prósent foreldra grunnskólabarna í sjötta til tíunda bekk frekar eða mjög ánægðir með skólamáltíðir.

Niðurstöðurnar benda til þess að börn og unglingar í eldri bekkjum grunnskólanna mættu borða meira af ávöxtum og grænmeti.

Skólapúlsinn er annars vegar nemendakönnun sem lögð er fyrir börn í sjötta til tíunda bekk grunnskóla á hverju ári og hins vegar foreldrakönnun sem lögð er fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna annað hvert ár.

Þegar nemendur á aldrinum 11 til 16 ára eru spurðir um grænmetis- og ávaxtaneyslu kemur í ljós að 22 prósent borða grænmeti tvisvar eða oftar á dag og 32 prósent borða tvo eða fleiri ávexti á dag. Hlutfallið hefur frekar lækkað á undanförnum árum, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.


UMMÆLI

Sambíó