Frítt í sund og á skíði í vetrarfríinu

Frítt í sund og á skíði í vetrarfríinu

Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri í sund og á skíði í vetrafríinu sem hófst í dag.

Í dag, mðvikudaginn 26. febrúar, fimmtudaginn 27. febrúar og föstudaginn 28. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar á Akureyri farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og í sundlaugar Akureyrarbæjar án endurgjalds. 

Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar VMA og MA framvísa nemendaskírteinum. 

Í tilkynningu um málið á vef bæjarins segir að nauðsynlegt sé þó að að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó