Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa

Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa

Laugardaginn 27. ágúst verður Götukörfuboltamót haldið í Garðinum hans Gústa við Glerárskóla. Þrír og þrír verða saman í hverju liði. Mótið er haldið í tengslum við Akureyrarvöku og verður völlurinn vígður formlega við sama tilefni.

Keppt verður í fjórum flokkum karla og kvenna: 13 ára og yngri, 15 ára og yngri, 25 ára og eldri og opnum flokki. Hvert lið fær a.m.k. þrjá leiki. Allir geta tekið þátt. Einn skiptimaður er leyfður (s.s. hámark 4 leikmenn í liði). Þaulvanir dómarar dæma. Akureyrarbær styrkir mótið.

Fyrstu leikir hefjast kl. 12:00. Leikjaniðurröðun verður birt daginn fyrir mót. Auk sigurverðlauna í hverjum flokki verða veitt verðlaun fyrir bestu tilþrif, flottasta liðið og háttvísi. Heitt verður á grillinu og plötusnúður verður á staðnum.

Skráning á mótið fer fram í gegnum netfangið 3a3Akureyri@gmail.com og þarf að taka fram í tölvupósti nöfn liðsmanna, fæðingardag og ár auk nafn liðs. Skráning þarf að berast eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 26. ágúst. Þátttökugjald er 8000 krónur á lið og greiðist á staðnum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó